„Til hvatningarverðlauna í heilsuferðaþjónustu var stofnað að frumkvæði iðnaðarráðherra til að fylgja eftir stofnun samtaka um heilsu- og lífsstílstengda ferðaþjónustu," segir í tilkynningu frá ráðuneytinu. Þar segir að margar þjóðir hafi náð miklum árangri á þessu sviði og er fólk sagt fara um langan veg til að sækja sér slíka þjónustu og upplifanir.
„Áhuginn á heilbrigðum lífsstíl fer vaxandi og sífellt fleiri sameina áhuga sinn á heilsueflingu og ferðalögum. Erlendar rannsóknir benda þess til að ferðamönnum sem sameina þetta tvennt fjölgi um 18% á heimsvísu árlega og stór hluti þeirra er frá helstu markaðssvæðum Íslands. Hér er því um að ræða mikilvægt sóknarfæri fyrir íslenska ferðaþjónustu, ekki síst utan háannar.," segir ennfremur.
Verðlaunin eru Heilsuhótelinu mikil hvatning fyrir áframhaldandi starf og uppbyggingu hótelsins.
Helgina 3.-5. febrúar 2012 verður haldið námskeið fyrir þá sem vilja hætta að reykja. Námskeiðið er sérhannað af þekktum einstaklingum sem oft hafa aðstoðað reykingarfólk til þess að hætta að reykja.
Aðferðin sem bett er hefur skilað gríðarlegum árangri og flestir hætt fyrir lífstíð án þess að nýta nikótíntyggjó eða annað eftir námskeiðið.
Leiðbeinendur:
Valgeir Skagfjörð, leikari og tónlistarmaður, Dr. Ásgeir Helgason dósent í sálfræði og lýðheilsufræðum.
Fyrirtæki og einstaklingar geta staðfest þáttöku með því að senda tölvupóst á netfangið heilsa@heilsuhotel.is með helstu upplýsingum. Takmarkaður fjöldi og því nauðsynlegt að panta sem allra fyrst til að missa ekki af þessu frábæra tækifæri til betra lífs.
Verð 49.500 með gistingu, fæði og námskeiðsgjaldi. Flest stéttarfélög og fyrirtæki styrkja reykleysisnámskeið.
Pantanir í síma 512-8040
Starfsfólk Heilsuhótels Íslands